Mittwoch, 11. November 2009

Salama eleku

Komið þið sæl og blessuð kæra fólk. Jóhann og Daníel sem heilsa ykkur hér, Jói að skrifa og Daníel á kantinum, en hvar erum við ? Jú í Ömmunni (Amman) sem er höfuðborg Jórdaníu. Við semsagt héldum að við værum að fara til Sádí-Arabíu en á flugvellinum sáum við að við vorum á leið til Jórdaníu. Ég nenni nú ekki að skrifa um atburðarrásina þegar þetta kom fyrst upp en hún var hröð. Ég spurði mína frau hvernig hún tæki í þetta og hún sagði að þetta væri spennandi dæmi og mikill peningur og að hún mundi bara fara til Íslands á meðan, þetta var að sjálfsögðu erfið ákvörðun því maður á nú afkvæmi en þetta var svo spennandi dæmi og góðir peningar í þessu að ég ákvað að slá til. Daníel var nú bara að sækja vin sinn Daða á flugvöllinn þegar ég sagði honum frá þessu en hann var ekki lengi að segja já. Vinurinn fór til Einars Hólmgeirs og allir sáttir.

Eftir 4 tíma beint flug þá lendum við í Jórdaníu og þegar flugvélin lendir þá horfum ég og Daníel á hvorn annan og svipurinn á okkur var þannig að við vissum ekkert hvað var að fara gerast. Síðan erum við á flugvellinum að fá einhverskonar vísa sem þarf og gaurinn spyr okkur „where do you stay“ ? og við bara „we have no idea“ og þá horfir hann á okkur og spyr aftur og við svörum aftur það sama og þá er kallaður til annar maður sem spyr sömu spurningu og við segjum bara að við séum að koma að spila handbolta og vitum ekki neitt, þetta tekur heldur betur sinn tíma og það eru ansi fáir eftir á flugvellinum og okkur er hætt að lítast á blikuna en þá segi ég við einn að það sé vonandi einhver að bíða eftir okkur sem veit hvar við gistum og síðan förum við fram og þar bíður forsetinn og leysir þetta mál. Loksins þegar við erum komnir af flugvellinum þá keyrum við í átt að hótelinu sem tók klukkutíma eða svo. Fórum og hittum þjálfarateymið og fórum aðeins yfir málin enda fyrsti leikurinn á morgunn.

Já þetta heitir semsagt Asian-champions cup eða eitthvað álíka og taka liðin hér frá mið-austurlöndum þátt í þessu eins og t.d Quatar,Kuwait,sádí,iraq og svo framvegis. Þetta eru semsagt meistarar og bikarmeistarar síns land sem taka þátt.

en svo fórum við að bara að sofa og vöknum í morgunmat og þar hittum við 4 leikmenn í liðinu og hittum síðan restina í hádegismatnum og svo er bara leikur klukkan 15:30. Þjálfarinn kemur inná herbergi og fer með okkur yfir nokkur kerfi og svo er leikurinn og við báðir beint í byrjunarlið og ekkert verið að flækja málin. Við kepptum á móti liði frá Quatar og með því lék ekki ómerkilegri maður en Joel Abati legend úr franska landsliðinu. En við unnum þann leik nokkuð sannfærandi með 5 mörkum og ég og Daníel skoruðum sitthvor 4 mörkin og vorum bara að skila báðir fínum leik. Liðið kom okkur skemmtilega á óvart en við bjuggumst við að þetta væri eitthvað sultu lið en þeir eru bara helvíti öflugir. Ég og Daníel höfum aldrei séð svona varnarleik áður en þeir spila afturliggjandi 5-1 vörn og þeir eru svo snöggir á löppunum og brjóta svo mikið að það er unun að horfa á það. En eins og þjálfarinn sagði þá hafði hann ekki áhyggjur að varnarleiknum heldur sóknarleiknum enda tökum ég og Daníel ekki mikinn þátt í varnarleiknum, ég skipti bara inná í sókn og daníel spilar horn. Enda er þessi vörn ekki fyrir hvíta manninn.

Gaurarnir í liðinu eru allir frá Sádí og eru helvíti hressir og skemmtilegir og smellum ég og Daníel eins og flís í rass inn í þetta lið. En ég gæti skrifað svo miklu meira en ég nenni því ekki. Í næstu færslu segi ég frá næstu tveimur leikjum og meira frá hvernig hótelið er og lífið og allt bara. Ætlaði bara að byrja á þessu því það er sagt að það sé erfiðast að byrja. Látið þetta blogg berast því það eru margir spenntir að vita hvernig þetta er.

En þangað til næst bara Jalla Jalla (áfram áfram)

Jói og Danni

3 Kommentare:

  1. Vel gert drengir!! Verður spennandi að fylgjast með þessum 3 vikum, nema að samningar verði framlengdir :)

    Skelli link á ykkur hjá mér...

    Gangi ykkur báðum vel, ætla ekki að vera með neitt skítkast eins og Daníel var með hérna um daginn þegar ég startaði mínu bloggi...

    p.s. Velkomnir í bloggbransann

    kv.
    Evrópa

    AntwortenLöschen
  2. Gaman að þessu. Ég sem hélt að blogg væri eitthverskonar 2007 bóla. En fínt að fá fréttir frá þér Jóhann minn, jú og Daníel.

    Bíð spenntur eftir næstu færslu...

    Múlinn out

    AntwortenLöschen
  3. Mikið hrikalega er ég ánægður með ykkur!! Ekki spurning að skella sér á þetta... gangi ykkur allt í haginn þarna og verið landi og þjóð til sóma ;) kærar kveðjur frá Greece

    AntwortenLöschen